Heilsunudd

November 12th, 2008

Frá örófi alda hefur mannkynið leitað leiða til að meðhöndla hina ýmsu sjúkdóma og kvilla. Nudd er ein af elstu heilsuaðferðunum, sem notuð hefur verið sem meðferðarform við ýmsum kvillum, líkamlegum og andlegum.

Í nútímaþjóðfélagi, þar sem hraði og streita einkennir líf alltof margra er nudd framúrskarandi meðferðarform á leið til betra lífs.

Við vöðvaverkjum (vöðvabólgu), festumeinum og ýmsum öðrum stoðkerfisvandamálum er nudd afar gagnlegt, þá má nefna spennuhöfuðverk, svefnörðugleika, fótapirring, fótaþreytu o.fl. o.fl.

Slökunarnudd er mjög áhrifaríkt við streitu og andlegu álagi, sem þjakar margan nútímamanninn, einnig hefur það sýnt sig, að þörf fyrir notkun verkalyfja og bólgueyðandi lyfja, svo og svefnlyfja, getur minnkað verulega við reglulegt nudd.

Nudd er því einföld og áhrifarík leið til að bæta líkamlega og andlega líðan.

.

Annastu vel um sjálfa þig…

…svo þú getir annast vel um þína.